Leikmenn kvennaliðs Hamranna 2007


Jóna Benný Kristjánsdóttir

Nafn: Jóna Benný Kristjánsdóttir

Fæðingadagur og ár: 11. janúar 1980

Uppeldisfélag: Sindri

Hjúskaparstaða: Mér finnst þetta nú aðeins of persónulegar spurningar…

Atvinna/nám: Nem lögfræði í HA, þjálfa upprennandi knattspyrnustjörnur í KA og vinn í íþróttahúsinu í Glerárskóla

Staða á vellinum: Miðja og framherji

Hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingum?Hita upp án bolta og allar aðrar æfingar án bolta (í þessu felst líka greinilega að hlaupa án þess að vera að elta bolta)

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á æfingum? Allar æfingar með bolta.

Hvert er skemmtilgeasta eða vandræðalegasta atvikið sem þú manst eftir í sambandi við fótbolta?

Einu sinni vorum við í Sindra að spila við Tindastól og einhver kom auga á pylsubrauð með tómatsósu á vellinum. Þegar betur var að gáð var pylsubrauðið hinsvegar dömubindi og þið megið giska á hvað tómatsósan var. Þetta vakti ekki mikla kátínu, meiri svona viðbjóð svo þetta var kannski ekkert sérstaklega skemmtilegt atvik en fyrir einhvern sem ekki var lengur með dömubindi var þetta klárlega vandræðalegt. Það skal fylgja sögunni að þetta var greinilega Tindastólsdömubindi ;)

Hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug þegar þú heyrir orðin:

Hesta-Jói: Sigrar síðasta sumars og stemmarinn í búningsklefanum :)

Flugvél: Þetta minni mig eiginlega bæði á Dagnýju Lindu og Mola þar sem Dagnýju datt fyrst í hug að kalla flugvél fyrir leik.

Klobbi: Júkkastælar

Gular og glaðar: Hamragellur á góðum degi í sumar

Kjullur: Þetta er kvenkynsorð í fleirtölu fyrir orðið hamar. Þessar upplýsingar eru fengnar frá Unu Kötumömmu svo mér dettur hún í hug þegar ég heyri þetta orð.

Þrumuskot: Kristín Hanna og Guðrún Soffía

Rúst: Komandi leikir ;)

Bleikur: Pink-gólí…

Skriðtæklari: Sigrún Björk, alveg klárlega

Hörkustræker: K. Vilhjálmsdóttir

ZiggiZiggiZiggi: MoliMoliMoli og væntalega svo VilliVilliVilli

Spurningar um samherja, hver:

Er besti félaginn: Húff margar margar…Lísbet, Kristín Hanna og Birna eru góðir félagar og það er mjög gott að vera með duglegu fólki eins og Ingu Dís og Söndru Sigm. í liði. Alltaf hægt að treysta á þær :)

Er grófust: Lísa skvísa (óléttar eru líka samherjar ;) )

Er fallegust: Hrabba er langflottust :)

Er mesta nördið: Dr. Sandra

Er mesti höstlerinn: Sorry Berglind mín… þú hefur þetta bara í þér og færð mitt atkvæði ;)

Er hriiiiiiikalegust: Inga Dís er hrikalega skerí í markinu og ég held að það séu líka nokkrar lafandi hræddar við Tótu P.

Er sneggst: Sandra er mjöööög fljót og líka Heiðrún Villa

Er mesti klaufinn: Haha payback-time… Stefanía og Sandra þið fáið þetta til baka frá mér ;) hehe

Er í flottustu takkaskónum: Hmmm… þessi er erfið. Þó ég standi nú ekki hátt upp úr grasinu (eða drullunni ef við erum að tala um æfingaaðstöðu okkar þessa dagana) þá hef ég bara ekki tekið nógu vel eftir skónum hjá ykkur stelpur mínar. Þetta hljóta að vera Kötu skór því hún er alltaf svo smekkleg ;)

Er mesti varnarjaxlinn: Fjúff… Sandra, Kristín Hanna, Thea, Sæa og margar fleiri eru þrusuvarnarmenn

Á fallegasta kærastann: Ehhh… Ég held að ég hafi nú ekki séð svo marga kærasta í þessu liði en Tót´ennar Birnu er ekkert svo ljótur ;) hehe

Á flottasta pabbann: Kata V. og Hrabba eiga báðar alveg glimrandi fína pabba :)

Spurningar um fótboltamenn almennt: Já takk

Uppáhaldsleikmaður: C. Ronaldo

Fallegasti knattspyrnumaðurinn: Er þetta eitthvað grín eða??? Auðvitað Neville systurnar…

Fallegasta knattspyrnukonan: Hrabba og Embill litli KRingur eru báðar alveg skínandi fagrar

Erfiðasti andstæðingurinn: Bryndís í ÍR var okkur frekar erfið í fyrra en við myndum sjá við henni núna sko ;)

Ekki erfiðasti andstæðingurinn: Fjarðarbyggðarvörnin var nú ekkert sérstaklega öflug í fyrrasumar…bara eins og hún leggur sig ;)

Átrúnaðargoð þegar þú varst lítil: Roberto Baggio og Rósa Júla

Hverjum vildir þú helst líkjast fótboltalega séð? Það væri ágætt að hafa einhverja smá hæfileika frá C. Ronaldo, annars myndi ég alveg sætta mig við að fá hraðann og þolið hennar Söndru, skallana og baráttuna hennar Þóru, vinstri fótinn og boltatæknina frá Guðrúnu Soffíu og markheppnina hennar Kötu V…þá held ég að maður væri nokkuð góður sko…

Hverjum vildir þú alls ekki líkjast á vellinum? Ég vildi alls ekki líkjast kjaftforum Ólafsfirðingi ;) (Ólafsfirðingarnir í mínu liði eru náttúrulega sérstaklega vel gerðar manneskjur og það skal tekið fram að þetta á ekki við um þær ;) )

Eitthvað að lokum: Kooooooma svooooo…


4 Ummæli hingað til
Skrá ummæli

[...] setti inn hina hliðina hjá sjálfri mér til að koma þessu aftur af stað…  Ég ætla að leyfa mér að skora á þrjár svo [...]

Pingback af Kvennalið Hamranna Plan vikunnar og hin hliðin :) «

Tóti er sko sáttur við þig núna mar…brosir útaf eyrum ;) hehehe…

Ummæli af Birna

Og HEY…hvar er myndin af þér tjella??

Ummæli af Birna

Ahhh já myndin… uuu hún kemur síðar bara :P

Ummæli af Jóna




Skrá ummæli
Line and paragraph breaks automatic, e-mail address never displayed, HTML allowed: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>